21. apr
PCC BakkiSilicon og Völsungur treysta samstarfiðÍþróttir - - Lestrar 639
Á afmælisdegi Völsungs þann 12. apríl sl. gerðu PCC BakkiSilicon og Íþróttafélagið Völsungur með sér samning um tveggja ára áframhaldandi samstarf.
Samningurinn felur í sér að PCC BakkiSilicon styrkir starf yngri flokkanna í knattspyrnu fjárhagslega.
Á móti verður fyrirtækið með auglýsingu framan á keppnisbúningum yngri flokka Völsungs líkt og síðast liðin tvö ár.
Það voru þau Hafsteinn Viktorsson forstjóri PCC BakkiSilicon og Guðrún Kristinsdóttir formaður Völsungs sem skrifuðu undir samninginn við opnun afmælissýningar Völsungs í Safnahúsinu.