Orð skulu standaFréttatilkynning - - Lestrar 568
Málefni starfsmanna Vísis hf. á Húsavík voru til umræðu á stjórnarfundi Framsýnar í gærkvöldi.
Samþykkt var að álykta um stöðu mála en flest bendir til þess að fyrirtækið loki starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík um næstu mánaðamót með tilheyrandi afleiðingum fyrir starfsmenn og samfélagið við Skjálfanda.
„Framsýn, stéttarfélag ítrekar kröfu félagsins um að Vísir hf. hætti þegar í stað við áform um að leggja niður rekstur fyrirtækisins á Húsavík um næstu mánaðamót.
Gangi áformin eftir verður það reiðarslag fyrir starfsmenn, sveitarfélagið og atvinnulífið á svæðinu. Þá er rétt að minna á yfirlýsingar Vísis hf. um uppbyggingu á Húsavík þegar þeir eignuðust Fiskiðjusamlag Húsavíkur á sínum tíma. Orð skulu standa, Vísismenn!!
Jafnframt hlýtur að teljast eðlilegt, láti fyrirtækið ekki af þessum áformum, að aðilum í útgerð og fiskvinnslu á Húsavík verði boðið að kaupa þann kvóta sem Vísir eignaðist á sínum tíma við kaupin á Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
Þessar staðreyndir ættu jafnframt að vera stjórnvöldum áminning um að gera viðeigandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það er að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu og koma þannig í veg fyrir að einstaka útgerðir geti rústað heilu byggðalögunum með því færa kvótann milli byggðalaga.
Framsýn, stéttarfélag kallar eftir samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja í sjávarútvegi. „