Orð skulu standa

Málefni starfsmanna Vísis hf. á Húsavík voru til umræðu á stjórnarfundi Framsýnar í gærkvöldi. Samþykkt var að álykta um stöðu mála en flest bendir til

Orð skulu standa
Fréttatilkynning - - Lestrar 568

Málefni starfsmanna Vísis hf. á Húsavík voru til umræðu á stjórnarfundi Framsýnar í gærkvöldi.

Samþykkt var að álykta um stöðu mála en flest bendir til þess að fyrirtækið loki starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík um næstu mánaðamót með tilheyrandi afleiðingum fyrir starfsmenn og samfélagið við Skjálfanda.

 
Ályktunin hljóðar svo:

„Framsýn, stéttarfélag ítrekar kröfu félagsins um að Vísir hf. hætti þegar í stað við áform um að leggja niður rekstur fyrirtækisins á Húsavík um næstu mánaðamót. 

Gangi áformin eftir verður það reiðarslag fyrir starfsmenn, sveitarfélagið og atvinnulífið á svæðinu. Þá er rétt að minna á yfirlýsingar Vísis hf. um uppbyggingu á Húsavík þegar þeir eignuðust Fiskiðjusamlag Húsavíkur á sínum tíma. Orð skulu standa, Vísismenn!! 

Jafnframt hlýtur að teljast eðlilegt, láti fyrirtækið ekki af þessum áformum, að aðilum í útgerð og fiskvinnslu á Húsavík verði boðið að kaupa þann kvóta sem Vísir eignaðist á sínum tíma við kaupin á Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.

Þessar staðreyndir ættu jafnframt að vera stjórnvöldum áminning um að gera viðeigandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það er að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu og koma þannig í veg fyrir  að einstaka útgerðir geti rústað heilu byggðalögunum með því færa kvótann milli byggðalaga.

Framsýn, stéttarfélag kallar eftir samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja í sjávarútvegi. „


 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744