17. apr
Nýr bátur til HúsavíkurAlmennt - - Lestrar 974
Það fjölgaði í húsvíska flotanum um helgina þegar Nonni í Vík SH kom til Húsavíkur.
Landleiðina frá Ólafsvík þaðan sem hann var keyptur.
Það útgerðarfyrirtækið Barmur, sem Ingólfur Árnason og Freyja Eysteinsdóttir standa að, sem keypti bátinn en fyrir á fyrirtækið Sigrúnu Hrönn ÞH 36 sem gerður er út á línu- og grásleppuveiðar.
640.is hitti á þá feðga Ingólf og Sigmar um borð í bátnum, sem mun fá nafnið Ásdís ÞH 136, í gær. Sögðust þeir ætla á grásleppu á honum þegar úthaldinu lýkur á Sigrúnu Hrönn og síðan á strandveiðar.
Nýi báturinn er af Sómagerð og mun fá nafnið Ásdís ÞH 136.
Feðgar legga að.