Strætó hækkar gjaldskránna

Ný gjaldskrá mun taka gildi fyrir þjónustu strætisvagna Strætó 1. mars nk.

Strætó hækkar gjaldskránna
Fréttatilkynning - - Lestrar 274

Ný gjaldskrá mun taka gildi fyrir þjónustu strætisvagna Strætó 1. mars nk.

Samhliða því verða tekin upp ný árskort fyrir aldraða og öryrkja sem seld verða á 19.900 kr. Árskortið veitir aðgang að strætisvögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að kaupa kortin á heimasíðu Strætó og fá þau afhent gegn framvísun viðeigandi skilríkja í miðasölu Strætó í Mjódd. Nýja árskortið fyrir aldraða og öryrkja ætti að koma vel út fjárhagslega, auk þess sem aukin þægindi felast í því að geta keypt kort til eins árs í stað afsláttarfarmiða með takmörkuðum fjölda ferða.

Engin breyting verður á árskortum fyrir nemendur 18 ár og eldri eða árskortum fyrir börn og ungmenni.

Helstu breytingarnar eru að nú verða almennir farmiðar seldir 20 saman, eða með sama fyrirkomulagi og í tilviki afsláttarfarmiða, og munu farmiðaspjöldin hækka um 2,9%.

Mesta hækkunin mun verða á eins-  og þriggja daga kortum, eftir breytinguna mun eins dags kort kosta 1.500 kr. og þriggja daga kort 3.500 kr.

Staðgreiðslugjaldið hækkar um 5% og verður 420 kr., en á móti mun Strætó taka upp staðgreiðslugjald fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ár, öryrkja og aldraða og verður það 210 kr.

Tímabilskort og farmiðar hækka á bilinu 2,9-4,2%.

Verðhækkun er ætlað að mæta almennum kostnaðarhækkunum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744