26. mar
Mynd dagsins - Göngugarpar á ferðMynd dagsins - - Lestrar 559
Það er best að henda í nýjan lið hérna á 640.is og nefna hann mynd dagsins.
Fyrsta myndin sýnir göngugarpa þrjá sem þessa vikuna hafa gengið að miklum móð á íþróttavellinum okkar.
Þetta eru Vilberg Lindi Sigmundsson, Einar Víðir Einarsson og Einar Annel Jónasson en þeir hófu gönguátak sl. mánudag.
Þá byrjuðu þeir á því að ganga þrjá hringi í kringum völlinn en hafa bætt einum við á hverjum degi til þessa.
Lindi, Einar Víðir og Einar Annel á göngu nú síðdegis.
Með því að smella á myndina má skoða hana í hærri upplausn.