Ljósin tendruð á jólatrénu í dagAlmennt - - Lestrar 586
Það hefur gengið á með éljum á Húsavík í dag og talsverður snjór í bænum eftir hríðaveður síðustu daga.
Það kom þó ekki í veg fyrir að ljós tendrað voru á jólatré bæjarbúa síðdegis á milli élja en það kom úr húsagarði í bænum og stendur á flötinni sunnan Samkomuhússins.
Kosið var meðal bæjarbúa á heimasíðu Norðurþings um hvaða tré skyldi verða jólatréð í ár en ríflega tíu tilnefningar bárust um falleg tré og af þeim voru fjögur valin og kosið um. Jólatréð kom úr garðinum á Fossvöllum 6 en það hlaut yfirburðarkosningu.
Dagskráin í dag var með hefðbundnum hætti, ávarp Kristjáns Þórs Magnússonar sveitarstjóra, hugvekja Sr. Sighvats Karlssonar sóknarprests ásamt söng og skemmtun.
Soroptimistaklúbbur Húsavíkur var með heitt súkkulaði til sölu að venju og rauk það út í bókstaflegri merkingu enda kalt á Húsavík í dag.
Jólasveinar til byggða með aðstoð Björgunarsveitarinnar Garðars og sungu þeir og dönsuðu í kringum jólatréð með bæjarbúum ásamt því að gefa ungu kynslóðinni mandarínur.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.