Ljósin tendruð á jólatrénu í dag

Það hefur gengið á með éljum á Húsavík í dag og talsverður snjór í bænum eftir hríðaveður síðustu daga.

Ljósin tendruð á jólatrénu í dag
Almennt - - Lestrar 586

Ljósin voru tendruð á jólatrénu í dag.
Ljósin voru tendruð á jólatrénu í dag.

Það hefur gengið á með éljum á Húsavík í dag og talsverður snjór í bænum eftir hríðaveður síðustu daga.

Það kom þó ekki í veg fyrir að ljós tendrað voru á jólatré bæjarbúa síðdegis á milli élja en það kom úr húsagarði í bænum og stendur á flötinni sunnan Samkomuhússins.

Jólatré 2018

Kosið var meðal bæjarbúa á heimasíðu Norðurþings um hvaða tré skyldi verða jólatréð í ár en ríflega tíu tilnefningar bárust um falleg tré og af þeim voru fjögur valin og kosið um. Jólatréð kom úr garðinum á Fossvöllum 6 en það hlaut yfirburðarkosningu.

Dagskráin í dag var með hefðbundnum hætti, ávarp Kristjáns Þórs Magnússonar sveitarstjóra, hugvekja Sr. Sighvats Karlssonar sóknarprests ásamt söng og skemmtun.

Jólatré 2018

Soroptim­ista­klúbb­ur Húsa­vík­ur var með heitt súkkulaði til sölu að venju og rauk það út í bókstaflegri merkingu enda kalt á Húsavík í dag.

Jólatré 2018

Jóla­svein­ar til byggða með aðstoð Björgunarsveitarinnar Garðars og sungu þeir og dönsuðu í kring­um jólat­réð með bæj­ar­bú­um ásamt því að gefa ungu kynslóðinni mandarínur.

Jólatré 2018

Jólatré 2018

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744