11. maí
Leik Völsungs og Magna frestað til laugardagsÍþróttir - - Lestrar 547
Leik Völsungs og Magna sem átti að fara fram á föstudaginn kl. 19:15 hefur verið frestað fram á laugardag og leikið verður kl. 15:00.
Veðurspáin fyrir föstudags-kvöldið er því miður ekki spennandi og hvorugt liðið yfir sig spennt að leika sama leikinn og í fyrra.
Grillað verður fyrir leik á laugardag en mæting í það er kl. 13:30. Jóhann Kristinn kíkir á mannskapinn sem mætir fyrir leik og heldur smá tölu.
Mætum og hvetjum strákana! Fylgjum eftir frábærri byrjun gegn Aftureldingu.