Leik Völsungs og Magna frestað til laugardags

Leik Völsungs og Magna sem átti að fara fram á föstudaginn kl. 19:15 hefur verið frestað fram á laugardag og leikið verður kl. 15:00.

Leik Völsungs og Magna frestað til laugardags
Íþróttir - - Lestrar 546

Frá leik Völsungs og Magna 6. maí í fyrra.
Frá leik Völsungs og Magna 6. maí í fyrra.

Leik Völsungs og Magna sem átti að fara fram á föstudaginn kl. 19:15 hefur verið frestað fram á laugardag og leikið verður kl. 15:00.

Veðurspáin fyrir föstudags-kvöldið er því miður ekki spennandi og hvorugt liðið yfir sig spennt að leika sama leikinn og í fyrra.

Grillað verður fyrir leik á laugardag en mæting í það er kl. 13:30. Jóhann Kristinn kíkir á mannskapinn sem mætir fyrir leik og heldur smá tölu. 

Mætum og hvetjum strákana! Fylgjum eftir frábærri byrjun gegn Aftureldingu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744