04. feb
Kyrrsetningu á flugvél Ernis hefur verið afléttAlmennt - - Lestrar 326
Isavia og Flugfélagið Ernir hafa náð samkomulagi um uppgjör vegna ógreiddra notenda- og flugleiðsögugjalda félagsins innanlands.
Kyrrsetningu á flugvél Flugfélagsins Ernis hefur því verið aflétt. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu Isavia og Flugfélagsins Ernis.
Isavia og Flugfélagið Ernir fagna því að niðurstaða hafi fengist í málið og binda vonir við áframhaldandi farsælt samstarf félaganna.