07. des
Kveikt á jólatrénu við Kjarna á LaugumAlmennt - - Lestrar 433
Sunnudaginn 2. desember sl. var kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum líkt og gert hefur verið fyrsta sunnudag í aðventu undanfarin ár.
Á heimasíðu Þingeyjarsveitar segir að Kvenfélag Reykdæla og Foreldrafélag Krílabæjar hafi tekið höndum saman og skipulagt samkomuna.
Áður en kveikt var á trénu voru sungin nokkur jólalög og þá birtust nokkrir jólasveinar með smá glaðning handa yngstu kynslóðinni.
Að því loknu var boðið upp á kakó og smákökur í Félagsheimilinu Breiðamýri.