Kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum

Sunnudaginn 2. desember sl. var kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum líkt og gert hefur verið fyrsta sunnudag í aðventu undanfarin ár.

Kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum
Almennt - - Lestrar 432

Jólatréð við Kjarna á Laugum.
Jólatréð við Kjarna á Laugum.

Sunnudaginn 2. desember sl. var kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum líkt og gert hefur verið fyrsta sunnudag í aðventu undanfarin ár. 

Á heimasíðu Þingeyjarsveitar segir að Kvenfélag Reykdæla og Foreldrafélag Krílabæjar hafi tekið höndum saman og skipulagt samkomuna.

Áður en kveikt var á trénu voru sungin nokkur jólalög og þá birtust nokkrir jólasveinar með smá glaðning handa yngstu kynslóðinni.

Að því loknu var boðið upp á kakó og smákökur í Félagsheimilinu Breiðamýri.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744