Hugmynd Kristínar í Sandfellshaga komst í úrslit í matvælasamkeppni EimsAlmennt - - Lestrar 600
Kristín Gunnarsdóttir í Sandfellshaga í Öxarfirði átti eina af þeim fjórum hugmyndum sem komust í úrslit í matvælasamkeppni Eims „Gerum okkur mat úr jarðhitanum“.
Tuttugu hugmyndir voru sendar inn í samkeppnina og fjórar þeirra valdar til úrslita.
Á vefnum Öxarfjörður.is segir að hugmynd Kristínar sé þríþætt:
· Nýta heita vatnið í firðinum til ræktunar á ýmsum jurtum.
· Nýta jarðhitann til að knýja frostþurrkunarkerfi og þurrka jurtirnar.
· Frostþurrka verðmætan innmat sem til leggst hjá Fjallalambi.
Kristín stefnir á að framleiða hráefni sem nýtt eru í fæðubótarefni en fjölmargar plöntur innihalda virk og verðmæt efni sem nýtt eru til fæðubótar. Næringargildi innmats er líka gríðarlegt og mikilvægt að nýta allar afurðir í landbúnaði. Það er fleira matur en feitt kjöt.
Í febrúar fékk Kristín styrk hjá Öxarfirði í sókn til að vinna þessa hugmynd áfram og þessi viðurkenning gefur henni byr undir vængi.
Á heimasíðu Eims www.eimur.is eru allar hugmyndirnar sem bárust nú aðgengilegar og lesa má um þær hér