Hugmynd Kristínar í Sandfellshaga komst í úrslit í matvælasamkeppni Eims

Kristín Gunnarsdóttir í Sandfellshaga í Öxarfirði átti eina af þeim fjórum hugmyndum sem komust í úrslit í matvælasamkeppni Eims „Gerum okkur mat úr

Kristín Gunnarsdóttir í Sandfellshaga.
Kristín Gunnarsdóttir í Sandfellshaga.

Kristín Gunnarsdóttir í Sandfellshaga í Öxarfirði átti eina af þeim fjórum hugmyndum sem komust í úrslit í matvælasamkeppni Eims „Gerum okkur mat úr jarðhitanum“.

Tuttugu hugmyndir voru sendar inn í samkeppnina og fjórar þeirra valdar til úrslita.

Á vefnum Öxarfjörður.is segir að hugmynd Kristínar sé þríþætt:

·         Nýta heita vatnið í firðinum til ræktunar á ýmsum jurtum.

·         Nýta jarðhitann til að knýja frostþurrkunarkerfi og þurrka jurtirnar.

·         Frostþurrka verðmætan innmat sem til leggst hjá Fjallalambi.

Kristín stefnir á að framleiða hráefni sem nýtt eru í fæðubótarefni en fjölmargar plöntur innihalda virk og verðmæt efni sem nýtt eru til fæðubótar. Næringargildi innmats er líka gríðarlegt og mikilvægt að nýta allar afurðir í landbúnaði. Það er fleira matur en feitt kjöt.

Í febrúar fékk Kristín styrk hjá Öxarfirði í sókn til að vinna þessa hugmynd áfram og þessi viðurkenning gefur henni byr undir vængi.

Á heimasíðu Eims www.eimur.is eru allar hugmyndirnar sem bárust nú aðgengilegar og lesa má um þær hér


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744