Handverkshópurinn Kaðlín flytur sig um setAlmennt - - Lestrar 401
Handverkshópurinn Kaðlín sem verið hefur til húsa í Pakkhúsinu sl. 14 ár mun flytja sig yfir í Samkomuhúsið á komandi vori og vera þar fram á haustið.
“Við fengum uppsagnarbréf í sumar og áttum að fara hér út í lok október en fengum það framlengt út árið. Við hófum strax leit að nýju húsnæði, leituðum og leituðum en ekkert fannst þrátt fyrir mikinn velvilja í bænum og fram um sveitir.
Þetta endaði síðan með því að Norðurþing tók málið að sér og nú er leitinni lokið og niðurstaðan sú að við fáum inni í anddyri Samkomuhússins frá 1. maí nk. og út september.
Gætum þó farið fyrr inn en það fer eftir því hvenær leikfélagið lýkur vetrarstarfseminni”. Segja handverkskonurnar í Kaðlín og árétta að leit þeirra að framtíðarhúsnæði sé hvergi nærri lokið enda einungis hægt að hafa opið yfir sumartímann í Samkomuhúsinu.
Þær segja mikla eftirsjá að Pakkhúsinu enda sé vandfundið eins gott og vel staðsett húsnæði fyrir handverkshús. Þarna fari megnið af ferðamönnum hjá, ýmist á leið í eða koma úr hvalaskoðun og margir reki nefið inn.
Handverkshúsið Kaðlín verður opið í Pakkhúsinu á fimmtudögum og föstudögum fram til jóla.
Sigrún Elín Brynjarsdóttir, Hugrún Rúnarsdóttir, Svanhvít Jóhannesdóttir, Bergljót Jónsdóttir, Guðrún Reynisdóttir, Elín Jónasdóttir og Elín Kjartansdóttir eru meðal þeirra sem skipa handverkshópinn Kaðlín.