Jafntefli hjá stelpunum en tap hjá strákunumÍþróttir - - Lestrar 593
Völsungur tók á móti Fjölni úr Grafarvogi á Húsavíkurvelli í gær en liðin eiga í baráttu um að komast upp úr 2. deild kvenna.
Fjölniskonur skoruðu eftir 11 mínútna leik og þar var að verki Rósa Pálsdóttir.
Þær bættu við öðru marki í upphafi síðari hálfleiks en þar var að verki Harpa Lind Guðnadóttir.
Fjölnir virtist vera sigla öruggum sigri í höfn en tíu mínútum fyrir leikslok minnkaði Elfa Mjöll Jónsdóttir muninn fyrir heimakonur en hún var nýkominn inná sem varamaður.
Og á lokamínútum leiksins jafnaði Hulda Ösp Ágústsdóttir fyrir Völsung og þar við sat. Bæði mörk Völsungs komu eftir fyrirgjafir Áslaugar Mundu af vinstri kantinum.
Völsungur komst upp í 2. sætið í 2. deild og á leik inni en stöðuna má sjá hér
Karlalið Völsungs lék gegn Víði í Garði á laugardag og höfðu heimamenn sigur 2-1. Arnþór Hermannsson skoraði mark Völsungs eftir sendingu frá Bjarka Baldvinssyni.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr leik Völsungs og Fjölnis og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Rósa Pálsdóttir sækir hér að marki Völsungs en hún skoraði fyrra mark Fjölnis. Arna Benný Harðardóttir til varnar.
Harpa Lind Guðnadóttir skorar hér síðara mark Fjölnis.
Kristný Ósk Geirsdóttir nær hér boltanum áður en Rósa Pálsdóttir kemst í hann.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir sækir að marki Fjölnis.
Elfa Mjöll skorar hér fyrra mark Völsungs en hún er aðeins 15 ára og var nýkominn inn á sem varamaður.
Hulda Ösp horfir hér á eftir boltanum í gegnum her varnarmanna Fjölnis og í markið.
Dagbjört Ingvarsdóttir var valin maður leiksins hjá Völsungi.