Hafið bláa á skólasamkomu í BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 453
Á hverju ári er sett upp skólasamkoma í Borgarhólsskóla þar sem nemendur koma fram, syngja, dansa og leika.
Samkoman er liður í fjáröflun 7. bekkjar sem fer í skólabúðir í Mývatnssveit að vori.
Dagskráin er fjölbreytt að vanda og meðal atriða er sýning nemenda í 7. bekk á Hafinu bláa í styttri útgáfu.
Hafið bláa er eftir þau Kristbjörgu Maríu Sigurðardóttur og Þorvald Bjarna Þorvaldsson en leikstjóri er Ásta Magnúsdóttir sem sér jafnframt um tónlistina í verkinu.
Leikritið er sýnt í dag og á morgun og hér er hægt að sjá sýningartíma.
Ljósmyndari 640.is brá sér á generalprufuna í gær og tók meðfylgjandi myndir og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.