Hæsta grásleppuvísitala í níu árAlmennt - - Lestrar 221
Stofnmæling Hafrannsóknarstofnunar á botnfiski (vorrall) sem nú er nýlokið sýnir rúmlega 40% hækkun stofnvísitölu grásleppu frá því í fyrra.
Hafrannsóknastofnun hefur lagt til við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að heildarafli á vertíðinni 2015 verði 6200 tonn. Það er veruleg aukning frá tillögu fyrir árið 2014 sem var 4200 tonn.
Hlutfall stórrar grásleppu (45-55 cm) er þó áfram lágt, er nú um 7% af fjölda fiska, en var um fjórðungur fiska í hrygningarstofni í upphafi stofnmælingarinnar árið 1985 (mynd 2).
Dreifing grásleppunnar í ralli í ár er austlægari en í fyrra (mynd 3). Merkingar sýna að grásleppan er á töluverðri hreyfingu eftir að hún kemur uppá grunnin og ferðast oft langar vegalengdir áður en hún veiðist. Það er því líklegt að einhver hluti grásleppunnar sem var fyrir Austurlandi og austanverðu Norðurlandi þegar stofnmælingin fór fram muni dreifa sér víðar með ströndinni. (hafro.is)