Gunnar Gíslason nýr framkvæmdastjóri GPGAlmennt - - Lestrar 365
Gunnar Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins GPG Seafood á Húsavík, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Hann mun hefja störf 1.september og tekur því við starfinu af Páli Kristjánssyni.
Þar segir að Gunnar starfaði áður á fjármálamarkaði við fjármögnun sjávarútvegsfyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis. Þá hefur hann einnig starfað fyrir Samskip í Bremen og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, einnig þekkt sem Icelandic Group, við sölu sjávarafurða.
Gunnar er með MBA gráðu frá Háskóla Reykjavíkur, BSc í útflutningsmarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.
GPG Seafood hefur höfuðstöðvar á Húsavík en jafnframt starfsemi á Raufarhöfn og Bakkafirði. Félagið gerir út fjóra báta og eru áherslunar í framleiðslunni saltfiskvinnsla, fiskþurrkun, hrognavinnsla og frysting uppsjávarfisks. Félagið er í eigu Gunnlaugs Karls Hreinssonar sem jafnframt er stjórnarformaður félagsins. mbl.is