20. mar
Guðný með gull og brons í bogfimiÍþróttir - - Lestrar 419
Guðný Ingibjörg Grímsdóttir Umf. Eflingu vann gullverðlaun í flokki 50 ára og eldri og bronsverðlaun í kvennaflokki á Íslandsmótinu í bogfimi innanhúss.
Mótið fór fram í Bogfimisetrinu í Reykjavík í gær og var keppnin jöfn og þurfti bráðabana til að skera úr um úrslit.
Tómas Gunnarsson Umf. Eflingu sem vann sigur á RIG í janúar, tók einnig þátt í mótinu en tókst ekki að komast á pall að þessu sinni. Þess má geta að Guðný og Tómas eru hjón og varð sonur þeirra Jóhannes Friðrik, Íslandsmeistari í bogfimi í unglingaflokki árið 2015.
Óhætt er því að segja að bogfimi sé eitthvað sem henti vel þessari fjölskyldu frá Lautum í Reykjadal. (641.is)