13. feb
Grunnskólinn á Raufarhöfn fékk þrjár iPad spjaldtölvur að gjöfAlmennt - - Lestrar 337
Kvenfélagið Freyja á Raufarhöfn færði skólanum á staðnum nýverið þrjár iPad spjaldtölvur að gjöf.
Einnig keypti skólinn nokkrar spjaldtölvur til viðbótar þannig að nú er hann orðinn ágætlega settur í spjaldtölvuvæðingunni.
"Við erum kvenfélagskonum afar þakklát fyrir þessa rausnarlegu gjöf. Það er jákvætt og ánægjulegt þegar starfsfólk og nemendur skólans njóta stuðnings úr samfélaginu". Segir í frétt á heimasíðu skólans.