Grásleppuvertíđin fer rólega af stađAlmennt - - Lestrar 468
Grásleppuvertíđin fer rólega af stađ frá Húsavík ţetta áriđ en heimilt var ađ leggja netin 20 mars sl.
Fyrstu tveir bátarnir lögđu um páskana og ađrir tveir í gćr en kallarnir á bryggjunni töldu 6-7 báta munu stunda ţessar veiđar frá Húsavík í ár.
Sigurđur Kristjánsson á Óskinni og feđgarnir Ingólfur Árnason og Sigmar Ingólfsson á Sigrúnu Hrönn eru búnir ađ vitja netanna og var ekki annađ ađ heyra á ţeim í gćr en ađ ţeir vćru sáttir viđ veiđina.
Sigurđur sagđi hana enn sem komiđ er svipađa og í fyrra og feđgarnir sögđu veiđina góđa, enda međ fullan bát.
Veriđ er ađ útbúa Lágey til grásleppuveiđa og ađ sögn Hilmirs Agnarssonar skipsstjóra verđa netin lögđ viđ Melrakkasléttuna.
Kristján Ţór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnađarráđherra undirritađi í vikunni reglugerđ sem kveđur á um ađ fjöldi daga til grásleppuveiđa á yfirstandandi vertíđ verđi 32.
Á heimasíđu Landsambands smábátaeigenda segir ađ ákvörđunin komi LS á óvart ţar sem ljóst er ađ sá dagafjöldi mun ekki nćgja til ađ ná ţeim heildarafla sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.