29. mar
Grásleppubátur sökk í höfninni á KópaskeriAlmennt - - Lestrar 504
Grásleppubáturinn Rósa í Brún ÞH sökk í höfnni á Kópaskeri um helgina.
Það voru sjómenn á netabát sem voru að fara í róður aðfaranótt laugardags sem sáu hvar trillan var sokkinn við flotbryggjuna.
Á fréttasíðu Kópaskers og nágrennis segir að ekki sé vitað hvað kom upp á, en dælt var úr trillunni og hún hífð á land til skoðunar um morguninn.
Það er fyrirtækið Tryggvi Aðal ehf sem á og gerir út Rósu í Brún og var nýbúið að leggja grásleppunetin.