Glćsilegur árangur íslenskra farfuglaheimila

Farfuglaheimilin á Vesturgötu 17 í Reykjavík og á Bíldudal hlutu fyrir skömmu verđlaun fyrir framúrskarandi árangur ađ mati gesta sem bóka gistingu sína

Glćsilegur árangur íslenskra farfuglaheimila
Fréttatilkynning - - Lestrar 437

Silja Baldvinsdóttir.
Silja Baldvinsdóttir.

Farfuglaheimilin á Vesturgötu 17 í Reykjavík og á Bíldudal hlutu fyrir skömmu verđlaun fyrir framúrskarandi árangur ađ mati gesta sem bóka gistingu sína gegnum bókunarvél alţjóđasamtaka Farfugla - Hostelling International.  

Veitt eru verđlaun fyrir besta farfuglaheimiliđ ađ mati gestanna og auk ţess eru veitt verđlaun í 5 mismunandi flokkum. Farfuglaheimiliđ á Vesturgötu var valiđ besta farfuglaheimiliđ og lenti jafnframt í ţriđja sćti fyrir störf sín ađ umhverfismálum. Farfuglaheimiliđ á Vesturgötu starfar, líkt og hin tvö í borginni; í Laugardalnum og Loft í Bankastrćti,  samkvćmt eigin sjálfbćrnistefnu.  Farfuglaheimiliđ á Bíldudal lenti í ţriđja sćti í kosningunni um vinalegasta farfuglaheimiliđ og náđi auk ţess í fimmta sćtiđ fyrir störf sín ađ umhverfismálum.  

Ţetta er sérlega glćsilegur árangur ţar sem alls eru um 2500 farfuglaheimili um allan heim bókanleg á bókunarvélinni. Til ţess ađ komast á listana ţarf hvert heimili ađ fá álit frá fleiri en  60 gestum.

Silja Baldvinsdóttir

Silja Baldvinsdóttir, framkvćmdastjóri og eigandi Farfuglaheimilisins á Bíldudal.

„Mér er mikiđ umhugađ um gestina mína og fyrir mér eru gestirnir á Farfuglaheimilinu eins og gestir á mínu eigin heimili og ţannig kem ég fram viđ ţá, segir Silja Baldvinsdóttir, framkvćmdastjóri og eigandi Farfuglaheimilisins á Bíldudal.  Silja og eiginmađur hennar, Björn Magnús Magnússon, hafa rekiđ heimiliđ frá 2008 og langt í ţađ mikinn metnađ. „Umhverfismálin eru okkar hjartans mál og heimiliđ er međ vottun sem Grćnt Farfuglaheimili og er einnig handhafi HI Quality Light gćđastjórnunarkerfisins frá Alţjóđasamtökunum.“ 

Reykjavík downtown hostel

Emilia Prodea, gćđastjóri Farfugla, Thomas Banakas, móttökustjóri á Vesturgötu, Kristi Strik, starfsmađur á Vesturgötu og Sigríđur Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Reykjavíkurheimilanna 

"Viđ ţökkum gestunum okkar fyrir ţessa frábćru viđurkenningu. Hún er teyminu hvatning til ađ gera enn betur, halda áfram ađ sýna umhyggju í störfum okkar og njóta gestgjafahlutverksins. Takk fyrir okkur!”  segir Sigríđur Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Farfuglaheimilanna í Reykjavík.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744