Glæsilegur árangur íslenskra farfuglaheimila

Farfuglaheimilin á Vesturgötu 17 í Reykjavík og á Bíldudal hlutu fyrir skömmu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur að mati gesta sem bóka gistingu sína

Glæsilegur árangur íslenskra farfuglaheimila
Fréttatilkynning - - Lestrar 437

Silja Baldvinsdóttir.
Silja Baldvinsdóttir.

Farfuglaheimilin á Vesturgötu 17 í Reykjavík og á Bíldudal hlutu fyrir skömmu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur að mati gesta sem bóka gistingu sína gegnum bókunarvél alþjóðasamtaka Farfugla - Hostelling International.  

Veitt eru verðlaun fyrir besta farfuglaheimilið að mati gestanna og auk þess eru veitt verðlaun í 5 mismunandi flokkum. Farfuglaheimilið á Vesturgötu var valið besta farfuglaheimilið og lenti jafnframt í þriðja sæti fyrir störf sín að umhverfismálum. Farfuglaheimilið á Vesturgötu starfar, líkt og hin tvö í borginni; í Laugardalnum og Loft í Bankastræti,  samkvæmt eigin sjálfbærnistefnu.  Farfuglaheimilið á Bíldudal lenti í þriðja sæti í kosningunni um vinalegasta farfuglaheimilið og náði auk þess í fimmta sætið fyrir störf sín að umhverfismálum.  

Þetta er sérlega glæsilegur árangur þar sem alls eru um 2500 farfuglaheimili um allan heim bókanleg á bókunarvélinni. Til þess að komast á listana þarf hvert heimili að fá álit frá fleiri en  60 gestum.

Silja Baldvinsdóttir

Silja Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Farfuglaheimilisins á Bíldudal.

„Mér er mikið umhugað um gestina mína og fyrir mér eru gestirnir á Farfuglaheimilinu eins og gestir á mínu eigin heimili og þannig kem ég fram við þá, segir Silja Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Farfuglaheimilisins á Bíldudal.  Silja og eiginmaður hennar, Björn Magnús Magnússon, hafa rekið heimilið frá 2008 og langt í það mikinn metnað. „Umhverfismálin eru okkar hjartans mál og heimilið er með vottun sem Grænt Farfuglaheimili og er einnig handhafi HI Quality Light gæðastjórnunarkerfisins frá Alþjóðasamtökunum.“ 

Reykjavík downtown hostel

Emilia Prodea, gæðastjóri Farfugla, Thomas Banakas, móttökustjóri á Vesturgötu, Kristi Strik, starfsmaður á Vesturgötu og Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Reykjavíkurheimilanna 

"Við þökkum gestunum okkar fyrir þessa frábæru viðurkenningu. Hún er teyminu hvatning til að gera enn betur, halda áfram að sýna umhyggju í störfum okkar og njóta gestgjafahlutverksins. Takk fyrir okkur!”  segir Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Farfuglaheimilanna í Reykjavík.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744