Gamla myndin - Fimm ár frá því Ernir hóf áætlunarflug til HúsavíkurGamla myndin - - Lestrar 537
Gamla myndin að þessu sinni var tekin fyrir sléttum fimm árum þegar flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug til Húsavíkur.
Það var flugvélin TF-ORC undir stjórn Hálfdáns Ingólfssonar sem flaug þetta fyrsta áætlunarflug Ernis til Húsavíkur og á þessum fimm árum hafa um 63.000 farþegar farið um völlinn.
Það var mikil hátíð í Aðaldalnum þennan dag og um 300 manns fögnuðu því að áætlunarflug var aftur komið á eftir 12 ára hlé.
Á myndinni eru flugvallarstarfsmennirnir Röðull Reyr Kárason og Baldur Ófeigur Einarsson, eða Kuggi eins og hann var jafnan kallaður, á tali við Hálfdán flugstjóra meðan þeir þjónustuðu vélina.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.
Hér má lesa frétt 640.is og skoða myndir og myndskeið frá því þegar áætlunarflugið hófst.