05. mar
Gamla myndin - Börnin studdu Ínu í IdolinuGamla myndin - - Lestrar 649
Gamla myndin að þessu sinni er einungis tíu ára gömul og tekin í Bjarnahúsi þegar þar var rekinn leikskóli.
Þetta var 6. apríl og mikil spenna í bænum enda úrslitaþátturinní Idol stjörnuleitinni framundan þar sem húsavíkurmærin Ína Valgerður Pétursdóttir söng til úrslita gegn Snorra Snorrasyni.
Í frétt fréttaritara Morgunblaðsins á mbl.is þann 6. apríl 2006 sagði m.a:
Börnin á leiksólanum í Bjarnahúsi eru engin undantekning þar á og í morgun tóku þau sig til og föndruðu við að setja mynd af Ínu á prik. Ínuprikinu ætla þau síðan að veifa Ínu til stuðnings þegar þau fylgjast með keppninni í Stöð 2.
Þegar börnin stilltu sér upp til myndatöku veifuðu þau Ínuspjöldunum og hrópuðu Ína, Ína, Ína svo undir tók í þessu tæplega hundrað ára húsi. Hrópin verða því vel æfð þegar keppnin fer fram en blásið verður til mikillar Idol-veislu á Hótel Húsavík.
Ína, Ína, Ína hrópuðu börnin í Bjarnahúsi og veifuðu spjöldunum sem þau bjuggu til fyrir úrslitaþáttinn í Idol stjörnuleitinni .
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.