Fjórtán bú tilnefnd sem hrossaræktarbú ársins - Torfunes þar á meðalAlmennt - - Lestrar 202
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviður-kenningar Bændasamtaka Íslands sem ræktunarbú ársins.
eidfaxi.is greinir frá þessu en þar segir að valið hafi staðið á milli 30 búa sem náð hafa athyglisverðum árangri á árinu.
Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 14 í ár.
Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2019 sem haldin verður á Hótel Sögu laugardaginn 2. nóvember næstkomandi. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem einnig verður haldin á Hótel Sögu sama dag.
Torfunesbúið er eitt þeirra sem tilnefnt er í ár en þau eru í stafrófsröð:
Fet, Karl Wernersson
Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
Hlemmiskeið 3, Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir
Hólabak, Björn Magnússon
Höfðabakki, Sigrún Kristín Þórðardóttir og Sverrir Sigurðsson
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Rauðalækur, Eva Dyröy, Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Kristján G. Ríkharðsson
Stóra-Hof, Bæring Sigurbjörnsson og Kolbrún Jónsdóttir
Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
Strandarhjáleiga, Sigurlín Óskardóttir, Þormar Andrésson og fjölskylda
Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth.