Fjórtán bú tilnefnd sem hrossaræktarbú ársins - Torfunes þar á meðal

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem ræktunarbú ársins.

Baldvin bóndi með Stefnu frá Torfunesi.
Baldvin bóndi með Stefnu frá Torfunesi.

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviður-kenningar Bændasamtaka Íslands sem ræktunarbú ársins. 

eidfaxi.is greinir frá þessu en þar segir að valið hafi staðið á milli 30 búa sem náð hafa athyglisverðum árangri á árinu.

Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 14 í ár.

Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2019 sem haldin verður á Hótel Sögu laugardaginn 2. nóvember næstkomandi. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem einnig verður haldin á Hótel Sögu sama dag. 

Torfunesbúið er eitt þeirra sem tilnefnt er í ár en þau eru í stafrófsröð:

Fet, Karl Wernersson

Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius

Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson

Hlemmiskeið 3, Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir

Hólabak, Björn Magnússon

Höfðabakki, Sigrún Kristín Þórðardóttir og Sverrir Sigurðsson

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble

Rauðalækur, Eva Dyröy, Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Kristján G. Ríkharðsson

Stóra-Hof, Bæring Sigurbjörnsson og Kolbrún Jónsdóttir

Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir

Strandarhjáleiga, Sigurlín Óskardóttir, Þormar Andrésson og fjölskylda

Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson

Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson

Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744