01. okt
Ferðamaðurinn sem féll við Goðafoss á góðum batavegiAðsent efni - - Lestrar 635
Lögreglan á Norðurlandi Eystra vill koma þeim gleðilegu tíðindum áfram að erlendi ferðamaðurinn sem féll í klettum skammt neðan við Goðafoss í gær er á góðum batavegi.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að við skoðun og aðhlynningu á sjúkrahúsi í Reykjavík hafi komið í ljós að hann er óbrotinn og áverkar minni en óttast var.
Ferðamaðurinn hlaut heilahristing og í raun ótrúlegt hve vel hann hefur sloppið frá slysi þessu. Hann nýtur nú hjúkrunar og hvíldar.
Lögreglan þakkar þeim samhenta hópi hjálparliðs sem kom á vettvang vegna þessa atviks.