08. des
Elsti íbúi Langanesbyggðar 99 ára í dagAlmennt - - Lestrar 266
Ingveldur Haraldsdóttir, íbúi á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn er 99 ára í dag.
Á heimsíðu Langanesbyggðar segir að Ingveldur, sem er frá Þorvaldsstöðum í Bakkafirði, hafi búið í nokkur ár á Nausti.
Hún sagðist bara taka lífinu með ró, fékk að velja hvað væri í hádegismatinn og það var saltfiskur, enda sagðist hún svo oft hafa borðað það í gegn um tíðina og það væri afbragðs matur.
Auðunn bróðir hennar er einnig á Nausti og þau una hag sínum vel. Það var svo búið að baka rjómatertu og tilheyrandi með kaffinu í tilefni dagsins./GBJ