Elsti íbúi Langanesbyggðar 99 ára í dag

Ingveldur Haraldsdóttir, íbúi á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn er 99 ára í dag.

Elsti íbúi Langanesbyggðar 99 ára í dag
Almennt - - Lestrar 266

Ingveldur Hannesdóttir. Lj. Gréta Bergrún.
Ingveldur Hannesdóttir. Lj. Gréta Bergrún.

Ingveldur Haraldsdóttir, íbúi á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn er 99 ára í dag.

Á heimsíðu Langanesbyggðar segir að Ingveldur, sem er frá Þorvaldsstöðum í Bakkafirði, hafi búið í nokkur ár á Nausti.

Hún sagðist bara taka lífinu með ró, fékk að velja hvað væri í hádegismatinn og það var saltfiskur, enda sagðist hún svo oft hafa borðað það í gegn um tíðina og það væri afbragðs matur.

Auðunn bróðir hennar er einnig á Nausti og þau una hag sínum vel. Það var svo búið að baka rjómatertu og tilheyrandi með kaffinu í tilefni dagsins./GBJ

Sjá fleiri myndir á heimasíðu Langanesbyggðar


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744