03. mar
Bátar koma og faraAlmennt - - Lestrar 427
Kalli í Höfða ÞH 234 sigldi úr höfn á Húsavík sl. sunnudag en Sæmundur Ólason úr Grímsey hefur keypt bátinn og það sem honum fylgir. Aðalsteinn Pétur Karlsson skipstjóri og útgerðarmaður sem lést á síðasta ári fékk bátinn nýsmíðaðan frá Trefjum í september árið 2000.
En bátar koma og fara og innan skamms mun Galti ÞH 320 bætast í flotann en hann er samskonar bátur og Kalli í Höfða. Það er útgerðarfyrirtækið Galti ehf.sem mun gera hann út en að því fyrirtæki stendur Aðalgeir Bjarnason fyrrum skipstjóri á Björgu Jónsdóttur ÞH 321.
Galti ÞH 320 hét upphaflega Guðrún Helga EA 85 og var smíðuð á aldarmótaárinu.