24. mar
Bændur verðlaunaðir fyrir úrvalsmjólkAlmennt - - Lestrar 285
Á dögunum var deildarfundur Auðhumlu fyrir Norðausturdeild haldinn í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði.
Á fundinum voru m.a. afhent verðlaun til bænda sem framleiddu úrvalsmjók á árinu 2018.
Eftirtaldir mjólkurframleiðendur í Norðausturdeild framleiddu úrvalsmjólk árið 2018:
Ábúendur á Torfum, Villingadal, Hallandi 1, Breiðabóli, Víðigerði og Hóli í Eyjafirði. Einnig ábúendur á Breiðabóli og Veisu í Fnjóskadal, Vogum í Mývatnssveit, Búvöllum og Hraunkoti í Aðaldal og Laxamýri í Norðurþingi. (641.is)
Verðlaunahafar 2018. Mynd: Jarle Reiersen