Markadrottning rsins: Ruth Ragnarsdttir

a var ansi mjtt munum etta ri hver myndi hira markadrottningartitilinn en r Ruth Ragnarsdttir og Helga Bjrk Heiarsdttir skoruu bar sj

Markadrottning rsins: Ruth Ragnarsdttir
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 950 - Athugasemdir ()

Ruth markadrottning
Ruth markadrottning

Það var ansi mjótt á munum þetta árið hver myndi hirða markadrottningartitilinn en þær Ruth Ragnarsdóttir og Helga Björk Heiðarsdóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir liðið í sumar. Það munaði aðeins örfáum mínútum á þeim stöllum og þar sem Ruth spilaði færri mínútur en Helga er titilinn hennar í ár.

Ruth Ragnarsdóttir, vinstri kantmaður Völsungs, er markadrottning sumarsins árið 2012. Hún skoraði sjö mörk í 15 leikjum og voru þau í öllum regnbogans litum. Sérstaklega er minnistætt mark gegn Grindavík á útivelli snemma sumars er hún smellti boltanum í fjærhornið af löngu færi.

Ruth er 18 ára gömul og kom við sögu í öllum leikjum Völsungs í sumar. Leikni hennar og hraði olli varnarmönnum andstæðinganna oftar en ekki vandræðum og er krafturinn í vinstri fót hennar meiri en hún gerir sér oft grein fyrir. Algjör leigumorðingi fyrir framan markið sem varla missir marks ef hún kemst í færi. Hún setti punktinn yfir i-ið í frábærum útisigri á Keflavík eftir Verslunarmannahelgi og í næsta leik gegn BÍ/Bolungarvík braut hún ísinn og skoraði fyrstu tvö mörkin í einum besta leik sumarsins hjá liðinu.

Ruth á að baki 32 leiki fyrir meistaraflokk Völsungs og hefur skorað í þeim átta mörk. Hún spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki sumarið 2010, þá aðeins 16 ára gömul. Ruth getur með auknum metnaði og betri æfingu orðið enn stöðugari leikmaður og burðarás í ungu liði Völsunga á komandi árum.

Ruth Ragnarsdóttir er Markadrottning Völsungs árið 2012
ruth

Tengdar greinar:
Markakóngur ársins: Hrannar Björn Steingrímsson
Hermaður ársins: Sigvaldi Þór Einarsson

Hermaður ársins: Anna Halldóra Ágústsdóttir


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr