Völsungur úr leik í bikarnumÍþróttir - - Lestrar 543
KR sló Völsung út í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag en leikið var á Húsavíkurvelli.
Fótbolti.net segir svo frá leiknum:
Alex Freyr Hilmarsson gerði fyrra mark leiksins er KR komst í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins á Húsavíkurvelli í dag.
Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn. Vesturbæingar voru sterkari en náðu ekki að skapa sér dauðafæri gegn þéttri vörn Völsungs.
KR-ingar héldu áfram að sækja og náðu loks að skora á 65. mínútu. Inle Valdes Mayari, markvörður Völsungs, náði ekki að halda skoti frá gestunum og var Alex Freyr fyrstur að fylgja eftir.
Völsungar færðu sig framar á völlinn og í kjölfarið galopnaðist vörn þeirra hvað eftir annað, en Valdes varði meistaralega og hélt sínum mönnum í leiknum.
Allar vonir heimamanna dóu þó á lokamínútunum þegar Guðmundur Óli Steingrímsson fékk beint rautt spjald fyrir að brjóta af sér innan vítateigs.
Tobias Thomsen skoraði úr vítaspyrnunni og KR tryggði sig áfram.
Skýrslu Fótbolta.net um leikinn má lesa hér





























































640.is á Facebook