Völsungur með stórsigur í Lengjubikarnum

Völsungur hóf leik í 4. riðili 2. deildar Lengjubikarsins í Boganum þegar þeir mættu KF.

Völsungur með stórsigur í Lengjubikarnum
Íþróttir - - Lestrar 714

Alli Jói kom Völsungum á bragðið.
Alli Jói kom Völsungum á bragðið.

Völsungur hóf leik í 4. riðili 2. deildar Lengjubikarsins í Boganum þegar þeir mættu KF.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson kom Völsungum yfir snemma leiks og var það eina mark fyrri hálfleiks. 

Elvar Baldvinsson kom Völsungi í 2-0 á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og áður en yfir lauk höfðu þeir grænu skorað fimm mörk.

Stórsigur 5-0 í fyrsta leik en mörkin skoruðu:

1-0 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('11) 
2-0 Elvar Baldvinsson ('46) 
3-0 Rúnar Þór Brynjarsson ('58) 
4-0 Ásgeir Kristjánsson ('59) 
5-0 Bjarki Baldvinsson ('68) 

Völsungur á næst leik við Fjarðabyggð/Hugin á laugardaginn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744