Völsungur fékk verđlaun fyrir háttvísi

Á 67. ársţingi KSÍ sem haldiđ var um síđastliđna helgi fékk meistaraflokksliđ kvenna hjá Völsungi verđlaun fyrir háttvísi.

Völsungur fékk verđlaun fyrir háttvísi
Íţróttir - - Lestrar 400

Geir Ţorsteinsson afhenti Kjartani viđurkenninguna
Geir Ţorsteinsson afhenti Kjartani viđurkenninguna

Á 67. ársþingi KSÍ sem haldið var um síðastliðna helgi fékk meistaraflokkslið kvenna hjá Völsungi verðlaun fyrir háttvísi.

Á síðasta keppnistímabili fékk liðið aðeins eitt gult spjald og ekkert rautt. 
 
Á heimasíðu Völsungs segir að greinilegt sé að háttvísi og árangur geti vel farið saman en lið Völsungs endaði í þriðja sæti riðilsins.
 
Á meðfylgjandi mynd sem fengin er af heimasíðu Völsungs eru þeir Geir Þorsteinsson formaður KSÍ og Kjartan Páll Þórarinsson framkvæmdarstjóri Völsungs.

  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744