Völsungur á toppnum eftir 3-0 sigur á móti KA

Völsungur tók á móti KA í PCC höllinni í kvöld í fjörugum blakleik fyrir framan 180 manns.

Völsungur á toppnum eftir 3-0 sigur á móti KA
Íþróttir - - Lestrar 217

Nikkia Benitez var stigahæst í leiknum með 15 stig
Nikkia Benitez var stigahæst í leiknum með 15 stig
Völsungur tók á móti KA í PCC höllinni í kvöld í fjörugum blakleik fyrir framan 180 manns. 

Fyrir leikinn var ljóst að Völsungur myndi berjast fyrir því að ná í þau 3 stig sem voru í boði þar sem liðið sat í 3ja sæti í Úrvalsdeildarinnar með 10 stig en KA í efsta sæti með 12 stig. 

 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Fyrsta hrina byrjaði af krafti og var KA með örlítið forskot fram í miðja hrinu en Völsungur náði að jafna í stöðunni 15-15. Eftir það héldu heimastúlkur forystunni allt til enda og unnu hrinuna 25-23. 

Önnur hrina byrjaði svipað og sú fyrsta en þó var Völsungur með forystu megnið af hrinunni en jafnt var í stöðunni 19-19 en þá sigu heimastúlkur fram úr kláruðu hrinuna 25-22. 

Í þriðju hrinu virtist vera sama mynstur í uppsiglingu en í stöðunni 4-4 sigu Völsungsstúlkur fram úr og náðu að komast í 11-6. KA neitaði að gefast upp og náðu að jafna í 18-18 og þá tók við háspennukafli þar sem liðin skiptust á forystunni og var jafnt í stöðunni 24-24, 25-25 og 26-26 en þá náði Völsungur að klára síðustu tvö stigin og unnu hrinuna 28-26 og leikinn þar með 3-0. 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Nikkia Benitez.

Stigahæst í liði Völsung var Nikkia Benitez með 15 stig og í liði KA var Nera Mateljan með 11. 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Fagnað í leikslok.

Eftir sigurinn situr Völsungur á toppi deildarinnar með 13 stig eftir 7 leiki, KA í öðru sæti með 12 stig eftir 6 leiki og Álftanes í því þriðja með 10 stig eftir 4 leiki. Það er því útlit fyrir að deildin verði spennandi skemmtileg í vetur. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744