Völsungsstelpurnar með stórsigur í Lengjubikarnum

Völsungsstelpurnar byrjuðu Lengjubikarinn með stæl þegar þær völtuðu yfir Einherja frá Vopnafirði á heimavelli.

Völsungsstelpurnar með stórsigur í Lengjubikarnum
Íþróttir - - Lestrar 245

Elísabet í leik með Völsungi sl. sumar.
Elísabet í leik með Völsungi sl. sumar.

Völsungsstelpurnar byrjuðu Lengjubikarinn með stæl þegar þær völtuðu yfir Einherja frá Vopnafirði á heimavelli.

Hildur Anna Brynjarsdóttir gerði fyrstu tvö mörkin í fyrri hálfleik.
 
Þær Sylvía Lind Henrysdóttir og Elísabet Ingvarsdóttir (2) kláruðu síðan leikinn í seinni háfleik. Úrslitin 5-0 en þetta voru fyrstu meistaraflokksmörk Sylvíu og Elísabetar

Þess má nú geta að Elísabet er aðeins 13 ára gömul og Halla Bríet Kristjánsdóttir, jafnaldra Elísabetar, spilaði svo allar mínúturnar í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir meistaraflokk. Framtíðin er björt
 
"Glæsilegur fyrsti leikur í Lengjubikar og nú er bara áfram gakk í undirbúningi fyrir sumarið! Frétta er svo að vænta af leikmannamálum á næstu dögum" segir á Fésbókarsíðu Græna hersins.
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
Frá leik Völsungs og Einherja í dag.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744