Völsungar stykja sig fyrir sumarið

Völsungar styrktu lið sitt fyrir baráttuna í 2.deildinni í sumar í vikunni þegar skrifað var undir samninga við tvo leikmenn hjá meistaraflokki karla í

Völsungar stykja sig fyrir sumarið
Íþróttir - - Lestrar 607

Haukur Eiðs og Aron Dagur að lokinni undirskrift.
Haukur Eiðs og Aron Dagur að lokinni undirskrift.

Völsungar styrktu lið sitt fyrir baráttuna í 2.deildinni í sumar í vikunni þegar skrifað var undir samninga við tvo leikmenn hjá meistaraflokki karla í knattpsyrnu.

Markmaðurinn efnilegi Aron Dagur Birnuson skrifaði undir saming, en hann kemur á láni frá KA. Aron Dagur, sem er 19 ára, hefur leikið bæði fyrir U17 og U19 landslið Íslands og er gríðarlega efnilegur og spennandi markmaður sem kemur til með að styrkja lið Völsungs mikið.

Þá skrifaði einnig undir samning varnarmaðurinn sterki Victor Svensson. Þessi sænski 32 ára gamli miðvörður kom hér ásamt unnustu sinni, Camillu Johansson sem spilar hér blak með liði Völsungs í Mizunodeildinni við góðan orðstír.

Frábær viðbót við öflugan hóp Völsungs og á heimasíðu félagsins eru Aron Dagur og Victor Svensson boðnir hjartanlega velkomnir í metnaðarfullt lið Völsunga.

Aron Dagur

Haukur Eiðsson og Aron Dagur.

Victor

Haukur Eiðsson og Victor Svensson.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744