Völsungar/Efling léku gegn HK í Kjörísbikarnum

Völsungar/Efling fengu HK í heimsókn í gær þegar liðin mætt­ust í fyrstu um­ferð bik­ar­keppni karla í blaki, Kjörís­bik­arnum.

Völsungar/Efling léku gegn HK í Kjörísbikarnum
Íþróttir - - Lestrar 188

Völsungar/Efling fengu HK í heimsókn í gær þegar liðin mætt­ust í fyrstu um­ferð bik­ar­keppni karla í blaki, Kjörís­bik­arnum.

Blakfréttir segja svo frá leiknum:

HK hefur gengið vel í vetur og einungis tapað einum leik í vetur, í úrvalsdeildinni, á meðan Völsungur eru um miðja fyrstu deild það var því ljóst að þetta yrði erfitt verkefni fyrir heimamenn.

Völsungur mættu þó alveg óhræddir í fyrstu hrinuna og spiluðu fínt blak alveg pressulausir gegn sterku liði HK. Hrinan var jöfn og spennandi en Völsungur var þó alltaf skrefinu á undan, hrinan var svo mjög spennandi í lokinn en Völsungur hélt út og vann fyrstu hrinuna 25-23 og voru því komnir 1-0 yfir.

HK voru fljótir að jafna sig á þessari hrinu og mættu mun ákveðnari til leiks í annari hrinunni, þar höfðu þeir tögl og haldir og keyrðu yfir Völsung en þeir unnu hrinuna 25-10.

Næstu tvær hrinur voru svo svipaðar HK voru sterkari en Völsungur sýndu fínt blak inná á milli en á endanum var munurinn of mikill á liðunum og HK kláruðu síðustu tvær hrinurnar 25-15 og 25-19.

HK eru því komnir áfram í 8-liða úrslit en Völsungur fá mikið hrós fyrir sína frammistöðu en þeir sýndu að þeir geta alveg staðið í bestu liðum landsins.

Hér kemur myndasyrpa ljósmyndara 640.is frá leiknum og með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744