Völsungar í átta liđa úrslit Kjörísbikarsins

Völsungur lék gegn Blakfélagi Hafnarfjarđar í 1. umferđ Kjörísbikars karla í PCC höllinni í gćr.

Völsungar í átta liđa úrslit Kjörísbikarsins
Íţróttir - - Lestrar 94

Ljósmynd Berta María Hreinsdóttir.
Ljósmynd Berta María Hreinsdóttir.

Völsungur lék gegn Blakfélagi Hafnarfjarđar í 1. umferđ Kjörísbikars karla í PCC höllinni í gćr.

Ţađ var vel mćtt í höllina, yfir 100 áhorfendur og gríđargóđ stemming í stúkunni sem og hjá keppendum sem buđu viđstöddum upp á gćđablak í skemmtilegum leik.
 
Fyrsta hrina fór frekar rólega af stađ en bćđi liđ sýndu góđa takta. Völsungur leiddi ţó meirihluta hrinunnar međ litlum mun og jafnt var nokkrum sinnum í hrinunni en í stöđunni 21-21 en tóku Völsungar af skariđ og kláruđu hrinuna 25-21.
 
Önnur hrina var sömuleiđis frekar jöfn, Völsungar byrjuđu ögn betur en svo skipust liđin á forystu og var jafnt á mörgum tölum, m.a. 23-23 en ţá kláruđu heimamenn nćstu tvö stig og hrinuna 25-23.
 
 
Hrina ţrjú byrjađi jafnt eins og hinar tvćr en svo settu Völsungar í gírinn og héldu öruggri 3-6 stiga forystu út hrinuna sem ţeir unnu 25-17 og leikinn ţar međ 3-0.
 
Stigahćstir í liđi Völsungs voru Aron Bjarki Kristjánsson međ 14 stig og Sigurđur Helgi Brynjúlfsson međ 10 stig og í liđi Blakfélags Hafnarfjarđar var Tómas Ţór Ţorsteinsson međ 9 stig.
 
Međ sigrinum er hiđ unga og efnilega Völsungsliđ komiđ áfram í 8 liđa úrslit og mćtir úrvalsdeildarliđi Vestra á Húsavík ţ. 25. febrúar nk.

  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744