Völsungar fjölmennir í Afreksbúðum BLÍ um helginaÍþróttir - - Lestrar 242
Um helgina munu Afreksbúðir BLÍ fara fram á höfuðborgar-svæðinu og hafa þjálfarar félagsliða um allt land tilnefnt sína lykilleikmenn í búðirnar þar sem þau munu æfa undir stjórn unglingalandsliðs-þjálfaranna.
Völsungar eru fjölmennir í búðunum en eftirtaldir leikmenn voru valdir:
Konur: Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir, Kristey Marín Hallsdóttir, Sigrún Anna Bjarnadóttir og Sigrún Marta Jónsdóttir. Þjálfari kvennaliðsins er Miguel Mateo Castrillo og honum til aðstoðar verður Bjarki Benediktsson.
Karlar: Aron Bjarki Kristjánsson, Hörður Mar Jónsson, Hreinn Kári Ólafsson, Jóhann Karl Sigfússon, Jón Andri Hnikarsson og Sigurður Helgi Brynjúlfsson. Þjálfari karlaliðsins er Oscar Fernandez Celis og honum til aðstoðar verður Hafsteinn Valdimarsson.