Vilja kom á fót deilileigu rafhlaupahjóla á Húsavík

Á fundi Byggðarráðs Norðurþings í dag lá fyrir erindi frá Hopp ehf. sem stendur fyrir deilileigu á rafhlaupahjólum.

Á fundi Byggðarráðs Norðurþings í dag lá fyrir erindi frá Hopp ehf. sem stendur fyrir deilileigu á rafhlaupahjólum.

Efni þessa erindis er að veitt verði leyfi fyrir opnun og rekstri á stöðvalausa deilileigu fyrir rafhlaupahjól á Húsavík. Þjónustan væri rekin sem sérleyfi (e. franchise) undir formerkjum Hopp.
 
Sérleyfishafinn, BÍB fasteignir ehf., verður eigandi að rafhlaupahjólunum og verður starfsemin rekin með hugbúnaði og aðstoð frá Hopp ehf.
 
"Það er ósk okkar að gerður sé þjónustusamningur milli Húsavíkur (Norðurþings) og sérleyfishafa um leyfi til reksturs og þróunar á deilileigu fyrir rafhlaupahjól á svæðinu" segir m.a í erindinu.
 
Byggðarráð samþykkti að sveitarfélagið Norðurþing geri þjónustusamning og samstarfsyfirlýsingu við Hopp ehf. um deilileigu fyrir rafskútur á Húsavík.
 
Byggðarráð felur starfandi sveitarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samninga og birta samstarfsyfirlýsinu á vefsíðu Norðurþings,
 
Málinu var vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdaráði.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744