Vildu að peningarnir færu til einhvers sem hefur ekki efni á mat og vatniAlmennt - - Lestrar 380
Frænkurnar Heba Soualem, sjö ára og Sigrún Marta Jónsdóttir, 6 ára, söfnuðu 5.610 krónum með sölu á sínum eigin listaverkum með hjálp frá stóra bróðir Hebu, Zakaría Soualem. Þær afhentu Húsavíkurdeild Rauða kross Íslands ágóða sölunnar nú í vikunni.
Þegar þær voru spurðar hvernig þeim datt í hug að búa til listaverk og selja þau til styrktar góðu málefni, var svarið: “Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt”. Þetta byrjaði því með að þær vildu eiga góða stund og endaði með styrk til hjálpar bágstöddum sem eiga ekki mat og vatn. Rauði krossinn varð þá fyrir valinu og færir þeim frænkum sínar bestu þakkir. Upphæðin mun renna í erlent hjálparstarf RKÍ.
Á meðfylgjandi mynd eru Heba og Marta afhenda Guðlaugu Gísladóttur formanni Húsavíkurdeildar RKÍ styrkinn en Guðný Þóra Þórðardóttir ritaði þessa frétt.