23. júl
			Veruleg aukning á fjölda gesta í Hvalaskoðun frá HúsavíkAlmennt -  - Lestrar 309
			
		Húsavík er hvalaskoðunarhöfuð-borg enda fjöldi ferðafólks sem leggur leið sína til Íslands til að upplifa ævintýri og komast í námunda við stærstu spendýr Jarðar í fallegu umhverfi.
Fram kemur á heimasíðu Norðurþings í dag að það sé töluverð aukning á fjölda gesta í hvalaskoðun en um 20% fleiri hafa farið í hvalaskoðun það sem af er ári en árið 2024.
Veðurfar hefur verið hagstætt og gott í sjóinn hvar Skjálfandaflói skartar sínu fegursta.
































									
































 640.is á Facebook