Útnefndur besti veitingastaðurinn hjá Íslandshótelum

Fosshótel Húsavík var nýlega útnefndur besti veitingastaðurinn 2018 hjá Íslandshótelum en sautján hótel eru innan keðjunnar víða um land.

Guðrún og Hrólfur Jón með verðlaunabikarinn.
Guðrún og Hrólfur Jón með verðlaunabikarinn.

Fosshótel Húsavík var nýlega útnefndur besti veitingastaður-inn 2018 hjá Íslandshótelum en sautján hótel eru innan keðjunnar víða um land.

Um er að ræða mikla viðurkenn-ingu fyrir hótelið og starfsmenn sem leggja mikinn metnað í að þjónusta þá gesti sem sækja hótelið heim.

Í sumar starfa um 50 starfsmenn hjá Fosshótel Húsavík sem flestir eru í Framsýn en sagt er frá þessu á heimasíðu Framsýnar en hótelstjóri er Erla Torfadóttir.

Á meðfylgjandi eru Guðrún Þórhallsdóttir veitingastjóri og Hrólfur Jón Flosason yfirkokkur með bikarinn góða sem á stendur „Besti veitingastaðurinn 2018“ .


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744