Um 5% atvinnuleysi á félagssvæði Framsýnar í júlímánuðiAlmennt - - Lestrar 114
Í lok júlí voru 186 skráðir atvinnulausir á félagssvæði Framsýnar sem þýðir um 5% atvinnuleysi á svæðinu meðan það var um 8,8% á landsvísu.
Atvinnuleysið skiptist þannig milli sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum:
Norðurþing 140, Þingeyjarsveit 25, Skútustaðahreppur 20 og Tjörneshreppur 1
Í frétt á heimasíðu Framsýnar segir að mun fleiri karlar en konur séu á atvinnuleysisskrá. Karlar voru 116 og konur 70. Því miður eru horfur á að atvinnuástandið fari versnandi þegar líður á haustið. Þar kemur til að töluvert er um uppsagnir í ferðaþjónustunni og þá fer áhrifanna vegna uppsagnanna hjá PCC á Bakka að gæta í ríkari mæli.
Margt bendir því til þess að veturinn verði mörgum erfiður segir í fréttinni.